Fotbolti.net
03.08.26 - 14:55
Brynjar Ingi Erluson

Grátbiður Trump um að bjarga starfi sínu

Infantino hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Donald Trump

Infantino hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Donald Trump

Canon

Mynd: EPA

Bandaríski miðillinn NY Post greinir frá því að Gianni Infantino, forseti FIFA, hafi ítrekað reynt að ná sambandi við Donald Trump Bandaríkjaforseta í von um að bjarga starfi sínu hjá alþjóðafótboltasambandinu.
Svíþjóð og Wales draga stuðning sinn við Infantino til baka
TENGT EFNI

Svíþjóð og Wales draga stuðning sinn við Infantino til baka

Infantino ætlaði að selja einkafjárfestum 20 prósenta hlut í FIFA Forward Enterprise fyrir 4,2 milljarða Bandaríkjadala, rúmlega 500 milljarða íslenskra króna.

Nýja félagið átti að taka yfir stóran hluta af viðskiptastarfsemi FIFA, meðal annars í kringum heimsmeistaramótið og aðrar keppnir sambandsins. Joshua Kushner og fjárfestingarfélag hans áttu að vera í lykilhlutverki.

Kushner-nafnið vakti strax athygli. Joshua er yngri bróðir Jared Kushner sem er giftur Ivönku Trump, dóttur Bandaríkjaforseta. Trump kom ekki sjálfur að viðskiptunum svo vitað sé. Tengslin vöktu samt spurningar enda hafa hann og Infantino verið nánir undanfarin ár.

Fótboltaheimurinn tók hugmyndinni illa og á endanum varð Infantino að draga hana til baka. UEFA hefur síðan hótað FIFA lögsókn og krafist þess að sambandið varðveiti öll gögn og samskipti sem tengjast málinu.

Þrýstingurinn á Infantino hefur aukist dag frá degi og nú berst hann fyrir starfi sínu. NY Post segir hann hafa reynt ítrekað að ná sambandi við Trump og óska eftir stuðningi hans. Infantino er einnig sagður hafa reynt að koma á símafundi við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur hins vegar neitað því að slíkur fundur hafi verið á dagskrá.

„Hann vildi ræða við utanríkisráðherrann um hvernig hægt væri að nota fótboltann sem hálfgert vopn fyrir Bandaríkin. Við vitum samt öll að þetta snýst um starf hans hjá FIFA. Þetta snýst ekki um neitt annað,“ sagði heimildarmaður NY Post.

Fótboltasambönd Wales og Svíþjóðar hafa þegar dregið stuðning sinn við endurkjör Infantino til baka. Enska sambandið er einnig sagt ætla að snúa við honum baki og gætu fleiri sambönd bæst við listann á næstu vikum.
Grátbiður Trump um að bjarga starfi sínu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.