Fotbolti.net
03.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Liverpool tilbúið að bjóða Jones nýjan samning

Liverpool tilbúið að bjóða Jones nýjan samning
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Curtis Jones hjá Liverpool er í mikilli óvissu en hann hefur verið sterklega orðaður við Inter í sumar.

Ítalska félagið hefur boðið um 35 milljónir evra en Liverpool er sagt vilja fá 40-50 milljónir evra fyrir hann.
Myndband: Curtis Jones reifst við liðsfélagana eftir leik
TENGT EFNI

Myndband: Curtis Jones reifst við liðsfélagana eftir leik

Jones komst í fréttirnar á dögunum þegar hann reifst við Dominik Szoboszlai og Kostas Tsimikas eftir æfingaleik liðsisn gegn Wrexham. Óljóst er hvað olli orðaskiptunum en Jones virðist hafa átt upptökin. Í leiknum afhenti Szoboszlai fyrirliðabandið til Tsimikas frekar en Jones þegar honum var skipt af velli. Í rifrildinu sást Tsimikas henda fyrirliðabandinu á jörðina.

Andoni Iraola hefur sagt að hann vilji halda enska miðjumanninum. Ben Jacobs hjá TalkSPORT segir að Liverpool sé tilbúið að bjóða honum nýjan samning ef hann verður áfram hjá félaginu.

Núgildandi samningur hans rennur út næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.