Fotbolti.net
03.09.05 - 06:47
Hafliði Breiðfjörð

Abel Xavier samdi við Middlesbrough (Staðfest)

Abel Xavier samdi við Middlesbrough (Staðfest)
Canon
Portúgalinn Abel Xavier sem lék með erkiféndunum í Everton og Liverpool fyrir nokkrum árum er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina en hann rétt náði að ganga frá félagaskiptum til Middlesbrough áður en félagaskiptaglugganum lokaði.
Hann er 32 ára gamall og hefur ekki átt fast sæti í landsliði Portúgal að undanförnu en telur sinn tíma vera að koma.

,,Síðustu stundir hafa ekki verið mér auðveldar," sagði hann við vefsíðu Boro.

,,Ég var alltaf í landsliðinu á Heimsmeistaramótum og Evrópumótum en ég hef misst sæti mitt. Ég tel að ég eigi nú fimm mánuði til að berjast. Það kemur nýtt tækifæri með nýjum þjálfara. Ég hef rætt við hann nú þegar og ef ég held áfram hér hjá Middlesbrough tel ég að ég geti barist fyrir sæti mínu."

Boro gerðu eins árs samning við Xavier sem kemur á láni frá Roma á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.