Fotbolti.net
03.09.22 - 21:43
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild kvenna: Allyson með þrennu í stórsigri gegn KH

2. deild kvenna: Allyson með þrennu í stórsigri gegn KH
Canon

Mynd: Völsungur

Kvennaboltinn

<b>KH 2 - 5 Völsungur</b>
0-1 Sonja Björg Sigurðardóttir ('3 )
0-2 Allyson Abbruzzi Patterson ('18 )
0-3 Allyson Abbruzzi Patterson ('24 )
0-4 Berta María Björnsdóttir ('33 )
1-4 Ágústa María Valtýsdóttir ('34 )
1-5 Allyson Abbruzzi Patterson ('50 )
2-5 Sarah Catherine Elnicky ('64 , Sjálfsmark)

Allyson Abbruzzi Patterson átti stórleik er Völsungur heimsótti KH í efri hluta 2. deildar kvenna fyrr í dag.

Allyson skoraði þrennu í stórsigri þar sem Húsvíkingar voru komnar í fjögurra marka forystu eftir rétt rúman hálftíma.

Tilraunir heimakvenna til að koma til baka báru engan árangur og urðu lokatölur 2-5 fyrir Völsung.

Völsungur fer upp í annað sæti deildarinnar með þessum sigri og er aðeins tveimur stigum eftir toppliði Fram sem gerði jafntefli við Gróttu fyrr í dag.

Toppbaráttan er gríðarlega spennandi þar sem aðeins fjögur stig skilja fjögur efstu liðin að.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.