03.09.26 - 21:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ipswich náði í besta leikmann Burnley (Staðfest)

Mynd: Ipswich Town

Mynd: Ipswich Town
Úrvalsdeildarnýliðarnir Ipswich Town gengu frá kaupum á Zian Flemming undir lok félagaskiptagluggans.

TENGT EFNI
Smeykur um að missa Flemming
Ipswich borgar 20 milljónir punda fyrir þennan sterka framherja sem skoraði 11 úrvalsdeildarmörk í 29 leikjum á síðustu leiktíð.
Flemming hefur verið meðal allra bestu leikmanna Burnley síðustu ár og setti tvö mörk í tveimur deildarleikjum í Championship deildinni á upphafi nýs tímabils.
Flemming er 28 ára gamall og gerir fjögurra ára samning við Ipswich. Hann er framherji að upplagi en getur líka spilað sem sóknartengiliður og miðjumaður.
Hann er líkamlega sterkur Hollendingur sem er sérstaklega góður í loftinu, en hefur aldrei fengið tækifæri með hollenska landsliðinu.

Our deadline day arrival. ???? pic.twitter.com/k2m0y951Q5
— Ipswich Town (@IpswichTown) September 1, 2026