Fotbolti.net
19.08.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Smeykur um að missa Flemming

,,Hjálpar ekki þegar hann skorar tvennu"

Smeykur um að missa Flemming
Canon

Mynd: Burnley

Nicky Hayen þjálfari Burnley vonast til að halda Zian Flemming hjá félaginu þrátt fyrir mikinn áhuga úr ensku úrvalsdeildinni.
Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham
TENGT EFNI

Championship: Burnley kom til baka gegn West Ham

Flemming var meðal bestu leikmanna Burnley er liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hefur meðal annars verið orðaður við Leeds, Brentford og Everton síðustu vikur.

Flemming var á sínum stað í byrjunarliði Burnley þegar liðið mætti til leiks í fyrstu umferð Championship deildarinnar um helgina. Burnley lenti tveimur mörkum undir gegn West Ham United en Flemming bjargaði stigi fyrir sína menn með tvennu á lokakaflanum. Hann var maður leiksins gegn Hömrunum alveg eins og í fyrstu umferð deildabikarsins þegar Burnley þurfti vítaspyrnukeppni til að slá Notts County úr leik.

„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að halda Zian hérna í sumar. Það er mikill áhugi á honum og það hjálpar ekki þegar hann stendur sig svona vel og skorar tvennu. Það verður erfitt að halda honum, hann er ótrúlega mikilvægur fyrir okkur og okkar leikstíl. Ekki bara útaf mörkunum," sagði Hayen.

„Kannski hentar það honum líka að spila áfram með okkur. Kannski getur hann verið hérna í sex mánuði í viðbót og skipt um félag í janúarglugganum. Ég veit ekki hvað gerist í framtíðinni en það mikilvægasta er að leikmaðurinn er að njóta sín á vellinum og að skora mikilvæg mörk."

Talið er að Burnley myndi samþykkja 15 til 20 milljónir punda fyrir Flemming.
Smeykur um að missa Flemming
Canon

Mynd: EPA

Smeykur um að missa Flemming
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.