Fotbolti.net
03.10.06 - 18:06
Guðmundur Dagur Ólafsson

Chris Sutton til Aston Villa (Staðfest)

Sutton þegar hann var hjá Celtic

Sutton þegar hann var hjá Celtic

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur fengið fyrrum framherja Birmingham City, Chris Sutton, til liðs við sig og skrifar hann undir samning sem gildir til loka leiktíðarinnar en hann var látinn fara frá Birmingham í sumar.
Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Villa, hefur fengið hinn 33 ára Sutton til félagsins vegna meiðsla Luke Moore á öxl sem gætu orðið til þess að hann verði frá það sem eftir lifir tímabilsins.

Þetta er í annað sinn sem O'Neill fær Sutton til sín en hann fékk hann til Celtic árið 2000 frá Chelsea fyrir 6m punda þegar hann var knattspyrnustjóri á þeim bænum. Hann vonast til að þessi fyrrum framherji Blackburn og Norwich sýni sama form og hann var í hjá Celtic en þá skoraði hann um það bil eitt mark í leik.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.