Fotbolti.net
03.10.20 - 10:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Chelsea og Crystal Palace: Mendy og Silva byrja

Thiago Silva spilaði ekki vel um síðustu helgi.

Thiago Silva spilaði ekki vel um síðustu helgi.

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrsti leikur dagsins hefst klukkan 11:30 þegar Chelsea tekur á móti Crystal Palace.
Síðustu dagar hafa ekki verið góðir fyrir Chelsea. Liðið gerði jafntefli gegn nýliðum West Brom í deildinni um síðustu helgi og datt út í deildabikarnum gegn Tottenham í vikunni. Crystal Palace tapaði um síðustu helgi gegn Everton, en vann um þar síðustu helgi gegn Manchester United.

Byrjunarliðin eru klár fyrir þennan leik. Edouard Mendy spilar sinn fyrsta úrvalsdeildarleik í markinu hjá Chelsea og Ben Chilwell byrjar í vinstri bakverði. Thiago Silva byrjar í miðverði en hann átti ekki góða frumraun með Chelsea gegn West Brom um síðustu helgi.

Crystal Palace breytir ekki byrjunarliði sínu frá 2-1 tapinu gegn Everton um síðustu helgi.

Byrjunarlið Chelsea: Mendy, Azpilicueta, Thiago Silva, Zouma, Chilwell, Jorginho, Kante, Hudson-Odoi, Havertz, Werner, Abraham.
(Varamenn: Kepa, James, Tomori, Kovacic, Mount, Pulisic, Giroud)

Byrjunarlið Crystal Palace: Guaita, Ward, Kouyate, Sakho, Mitchell, Townsend, McCarthy, McArthur, Eze, Ayew, Zaha.
(Varamenn: Hennessey, Kelly, Riedewald, Milivojevic, Meyer, Dann, Benteke)

Leikir dagsins:
11:30 Chelsea - Crystal Palace (Síminn)
14:00 Everton - Brighton (Síminn)
16:30 Leeds - Man City (Síminn)
19:00 Newcastle - Burnley (Síminn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.