22.11.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Pirraður Messi grýtti boltanum í andlitið á Tapia

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi var mjög pirraður þegar Inter Miami steinlá gegn Columbus Crew í 16-liða úrslitum úrslitakeppni MLS deildarinnar.

TENGT EFNI
Messi fyrstur í sögunni til að vera markahæstur tvö ár í röð
Inter fékk dæmda vítaspyrnu á sig snemma leiks og lenti undir áður en liðið missti mann af velli með tvö gul spjöld á 36. mínútu.
Gonzalo Tapia skoraði af vítapunktinum og átti svo eftir að skora annað mark í síðari hálfleik til að hjálpa Columbus að vinna 0-3 á erfiðum útivelli.
Tíu leikmenn Inter réðu ekki við andstæðinga sína og þurfa núna stórsigur í útileiknum sem verður leikinn næstu helgi. Takist þeim ekki að vinna með þriggja marka mun eða meira detta Messi og félagar úr leik.
Í uppbótartíma fyrri hálfleiks, þegar staðan var enn 0-1 fyrir Columbus, var Messi stálheppinn að vera ekki rekinn af velli fyrir að grýta boltanum viljandi í andlitið á markaskoraranum - sem fékk líka gult spjald fyrir sinn þátt í atvikinu.

Lionel Messi takes a throw-in off Gonzalo Tapia's face https://t.co/jX3tTuojHe
— Tom Bogert (@tombogert) November 22, 2026
Lionel Messi drilled Gonzalo Tapia in the head with this throw-in https://t.co/TEwPTFvMSK
— Jomboy Media (@JomboyMedia) November 22, 2026

Mynd: EPA