Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 03. október 2020 19:35
Ívan Guðjón Baldursson
Sonný Lára: Þetta er alls ekki búið
Sonný Lára í leiknum í dag.
Sonný Lára í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sonný Lára Þráinsdóttir átti góðan leik á milli stanga Blika sem höfðu betur gegn Val í eiginlegum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í dag.

Lestu um leikinn: Valur 0 -  1 Breiðablik

„Þetta var svaka leikur maður, þetta var eiginlega einn með öllu. Það er búið að tala um þennan leik síðan við töpuðum á móti Selfossi og þetta var mjög gaman. Þetta eru leikir sem maður vill spila," sagði Sonný.

„Við vorum ótrúlega skipulagðar og ekkert að opna okkur. Þær fengu nokkur færi en við fengum líka helling af færum sem við hefðum getað skorað úr. Þetta var bara skemmtilegur leikur."

Sonný telur ótímabært að tala um að Blikar séu með níu fingur á titlinum en liðið á enn eftir að spila þrjá leiki í Pepsi Max-deildinni, með tveggja stiga forystu á Val og leik til góða.

„Nei ég myndi nú ekki segja það, það eru þrír leikir eftir. Það er bara næsti leikur, áfram gakk. Við fögnum í kvöld og byrjum að hugsa um Fylkisleikinn á morgun. Ef maður heldur ekki fókus þá getur allt gerst í fótbolta þannig þetta er bara alls ekki búið."
Athugasemdir
banner
banner
banner