Höddi Magg heitur: Megið ekki vera svona Messi-sinnaðir

Mynd: EPA

Hödda var heitt í hamsi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA
Egyptar voru brjálaðir eftir tap liðsins gegn Argentínu í 16-liða úrslitum á HM í kvöld.
Egyptaland náði tveggja marka forystu en Argentína vann að lokum 3-2 með sigurmarki í uppbótatíma. Það var mark dæmt af Egyptum í stöðunni 1-0 og Argentína fékk aukaspyrnu hinu megin á vellinum.

Egyptar voru brjálaðir yfir sigurmarkinu því þeir vildu fá vítaspyrnu í aðdragandanum þegar Mohamed Salah féll í teignum. Hossam Hassan, landsliðsþjálfari Egypta, talaði um að FIFA hafi hagrætt leiknum svo Argentína myndi komast áfram.
Hörður Magnússon ræddi atvikin í HM kvöldi og var heitt í hamsi. Arnar Gunnlaugsson og Eiður Smári Guðjohnsen ræddu málin við hann.
„Það er ekkert að þessu marki, þetta er hundrað metrum frá marki svo skora þeir eitt besta mark mótsins. Þetta mark á bara að standa allan daginn. Af hverju í ósköpunum var það ekki látið standa? Er það af því að Messi er mögulega á leiðinni út?"
„Það skiptir í raun og veru ekki máli. Egyptar komast í 2-0 og geta svo sjálfum sér um kennt," sagði Arnar
„Hefðu þeir ekki viljað komast í 3-0? Þú tekur löglegt mark af fyrir enga hluta sakir. Martinez hendir sér niður hundrað metra frá marki. Þið megið ekki vera svona Messi-sinnaðir," sagði Höddi.
„Það má færa rök fyrir því að þetta mark átti að standa en það gerði það ekki. Svo skorar Egyptaland 2-0, fengu Argentínumenn einhverja hjálp við að skora þessi mörk? Er það ekki Egyptum að kenna að fá á sig þrjú mörk á 12 mínútum?" Sagði Eiður.
„Ef hjálpin hefði komið eins og hinu megin að VAR dómarinn sendi dómarann í skjáinn til að taka annað markið af fyrir mögulega aukaspyrnu sem er hundrað metra frá marki. Af hverju sendir VAR dómarinn ekki aðaldómarann í skjáinn bara til að skoða það? (þegar Salah fellur í teignum í aðdraganda sigurmarksins)" Sagði Höddi.
„Þeir hafa væntanlega metið það að það hafi ekki verið brot. Ég neita að trúa því að það séu samsæriskenningar á bakvið allt. Þetta virkar ekki þannig í þessum heimi," sagði Arnar.
Höddi vitnaði í það þegar bann Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna, var dregið til baka.
„Við erum búnir að sjá forseta FIFA fella niður leikbann á þessu móti," sagði Höddi. „Það er ekki forseti FIFA sem fellir niður leikbann," sagði Arnar.
„Þetta eru nefndir. Það eru 600 manns sem vinna hjá FIFA. Það eru nefndir sem sjá um þetta. Þegar við erum komnir í þessar samsæriskenningar erum við að lítillækka leikinn okkar og ég þoli það ekki," sagði Arnar enn fremur.