Fotbolti.net
08.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nökkvi Þeyr á skotskónum - Bjarni fyrirliði gegn Adam

Nökkvi Þeyr á skotskónum - Bjarni fyrirliði gegn Adam
Canon

Mynd: Sparta Rotterdam

Íslendingar voru í eldlínunni í æfingaleikjum um alla Evrópu í gær. Nökkvi Þeyr Þórisson innsiglaði 4-0 sigur Sparta Rotterdam gegn VOC. Nökkvi spilaði á láni hjá Telstar seinni hluta síðasta tímabils í Hollandi og hjálpaði liðinu að halda sér uppi í efstu deild.
Það var Íslendingaslagur þegar dönsku liðin Roskilde og AB gerðu jafntefli 1-1. Bjarni Aðalsteinsson var fyrirliði Roskilde og þá var Adam Ingi Benediktsson í markinu hjá AB. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB.

Stefán Teitur Þórðarson spilaði seinni hálfleikinn í 3-1 sigri Hannover gegn Phonix Lubeck sem spilar í fjórðu efstu deild í Þýskalandi.

Helgi Fróði Ingason spilaði seinni hálfleikinn í 1-1 jafntefli hollenska liðsins Helmond, sem spilar í næst efstu deild, gegn Gemert sem spilar í fjórðu efstu deild.

Rúnar Alex Rúnarsson spilaði fyrri hálfleikinn í 1-1 jafntefli FC Kaupmannahafnar gegn Viktoria Plzen frá Tékklandi. Viktor Bjarki Daðason var ekki með en hann meiddist í maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.