Egyptaland leggur fram kvörtun til FIFA

Hossam Hassan

Mynd: EPA

Hossam Hassan

Mynd: EPA
Egypska fótboltasambandið hefur óskað eftir rannsókn á dómaraákvörðunum sem teknar voru í tapinu gegn Argentínu í 16-liða úrslitum í gær.

TENGT EFNI
Þjálfari Egypta með fast skot á FIFA - „Þessum leik var klárlega hagrætt og allur heimurinn sá það"
Sambandið vill að Francois Letexier, dómari leiksins, og hans teymi verði sent heim. Egyptar voru brjálaðir eftir leikinn en Hossam Hassan, þjálfari liðsins, og Mostafa Ziko, leikmaður liðsins, sögðu að FIFA hafi reynt að koma Argentínu áfram.
Það voru tvö stór vafaatriði í leiknum. Það var mark dæmt af Egyptum í stöðunni 1-0 þar sem brotið var á Lisandro Martinez hinu megin á vellinum. Egyptar töldu síðan að það hafi verið brotið á Mohamed Salah inn í vítateig Argentínu áður en Enzo Fernandez skoraði sigurmarkið.
Mikið hefur verið rætt og ritað um dómgæsluna og aðkomu FIFA á mótinu. Folarin Balogun, framherji Bandaríkjanna, mátti spila gegn Belgíu á dögunum eftir að FIFA dró rautt spjald sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu.