Fotbolti.net
08.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Scaloni: Strákarnir kalla mig grenjuskjóðu

Scaloni: Strákarnir kalla mig grenjuskjóðu
Canon

Mynd: EPA

Það var tilfinningaþrungin stund fyrir Argentínumenn í gær þegar liðið komst áfram í 8-liða úrslit á HM eftir ótrúlegan sigur á Egyptalandi.

Egyptaland komst í 2-0 en endurkoma Argentínu hófst á 79. mínútu þegar Cristian Romero minnkaði muninn, Lionel Messi jafnaði síðan metin og svo skoraði Enzo Fernandez sigurmarkið í uppbótatíma.
Lionel Messi grét eftir leikinn en hann klikkaði á vítaspyrnu í stöðunni 1-0. Lionel Scaloni, þjálfari argentíska liðsins, grét einnig.

„Ég verð alltaf tilfinningaríkur. Stundum koma tárin. Tárin komu líka í búningsklefanum. Strákarnir kalla mig grenjuskjóðu en mér er alveg sama," sagði Scaloni.

Honum leið aldrei illa á meðan á leiknum stóð.

„Mér leið alltaf eins og leikurinn væri í okkar höndum. Mér fannst liðið ekki vera spila illa. Við fengum færi," sagði Scaloni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.