Fotbolti.net
07.07.26 - 23:29
Hilmar Jökull Stefánsson
Gatorade

Gabríel Þór: „Fokkaði“ svolítið upp leikplaninu

Auglýsing
Gabríel Þór: „Fokkaði“ svolítið upp leikplaninu
Canon

Mynd: Augnablik

Gabríel Þór Stefánsson, annar tveggja þjálfara Augnabliks, var að vonum svekktur með 3-2 tap sinna manna gegn KFA í Gatorade bikar Fótbolti.net í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Gabríel að leik loknum.

Lestu um leikinn: KFA 3 - 2 Augnablik

Hvernig var tilfinningin beint eftir leik?

„Hún er bara súr. Við byrjuðum alls ekki vel og það fokkaði svolítið upp leikplaninu og setti það í skrúfurnar, að fá á sig mark eftir mínútu. Geggjaður karakter hjá strákunum að koma til baka og jafna og fáum síðan á okkur ódýrt mark þar sem við erum einhvern veginn soft á miðjunni og vantar smá „urgency“ (innsk. blm. áræðni) í okkur oft á tíðum. Annars geggjaður leikur hjá strákunum, stoltur af þeim.“

Er ekki súrt fyrir ykkur að fá mark á ykkur strax í kjölfarið á því að þið jafnið?

„Bara klárlega. Það setur leikinn erfitt upp fyrir okkur.“

Á þessum tímapunkti á tímabilinu er Augnablik með 14 stig í 8. sæti 3. deildarinnar. Var það markmiðið fyrir mót?

„Nei klárlega ekki markmiðið. Nokkrir leikir sem að hafa ekki farið okkur í vil og hefðum klárlega viljað vera með fleiri stig en við erum með marga unga stráka úr 2. flokknum.“


Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.