Þjálfari Györ: Ég man ekki hvað gerðist og þetta er hluti af leiknum

Úr leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Efrain Juarez.

Mynd: EPA

Úr leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Víkingur tók á móti ungversku meisturunum Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrri leik liðanna. Leiknum lauk með 1-0 sigri Víkinga en sá sigur hefði getað verið töluvert stærri. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Efraín Juarez, þjálfara ETO Györ, eftir leikinn.
„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur, þeir eru lið sem hefur unnið marga leiki síðustu ár í Evrópukeppnunum hér á þeirra heimavelli. Aðstæðurnar voru ekki auðveldar, gervigras, vindur og erfiðar aðstæður. Það var síðan bara nánast í síðustu sókn leiksins sem við missum einbeitingu og fengum á okkur mark. Við viljum alltaf koma á hvaða stað sem er og vinna en í seinni leiknum heima verðum við að bæta okkur með boltann, sá leikur verður öðruvísi.''
Víkingur var mun meira með boltann og Györ liðinu virtist vilja bara liggja til baka í rauninni allan leikinn.
„Við vitum að þetta er lið sem hefur nú þegar spilað um tólf leiki í deildinni á meðan við erum bara nýbyrjaðir á undirbúningstímabilinu. Það var erfitt að vera mikið með boltann í þessum erfiðu aðstæðum. Við vissum að Víkingur væri lið sem elskar að vera mikið með boltann og planið var að beita skyndisóknum og við fáum gott færi í lok fyrri hálfleiks. Enginn vill tapa en við fáum tækifæri til þess að bæta fyrir það á heimavelli með fólkinu okkar til þess að komast í næstu umferð.''
Efraín Juarez var mikið að skipta sér af þjálfarateymi Víkings og eyddi mikilli orku í að tuða í fjórða dómaranum. Hvers vegna var hann svona ósáttur út í þjálfarateymi Víkings?
„Ég veit ekkert, það sem gerist á vellinum helst inni á vellinum. Sem þjálfari, ég man ekki hvað gerðist og þetta er hluti af leiknum,'' sagði Efraín og vildi ekki tjá sig meira um það.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Efrain Juarez.

Mynd: EPA



