Fotbolti.net
03.11.05 - 20:48
Magnús Már Einarsson

Olga, Hólmfríður og Pálína til KR (Staðfest)

Olga er hér í leik með ÍBV gegn KR.

Olga er hér í leik með ÍBV gegn KR.

Canon

Mynd: Hilmar Þór

Olga Færseth, Hólmfríður Magnúsdóttir og Pálína Bragadóttir hafa allar gengið til liðs við KR frá ÍBV en þetta kemur fram á heimasíðu Vesturbæjarliðsins nú í kvöld.
Framherjinn Olga lék með KR frá 1995 til 2002 og og hefur hún alls skoraði 249 mörk í 179 leikjum fyrir liðið! Þá hefur hún skorað 38 sinnum þrennu fyrir KR sem er magnaður árangur.

Hólmfríður kom til KR frá Fylki árið 1999 frá Fylki. Hún kemur nú aftur til KR eftir ársdvöl hjá ÍBV en alls hefur Hólmfríður skorað 79 mörk í 112 leikjum fyrir KR. Markvörðurinn Pálína Guðrún Bragadóttir hefur leikið 92 leiki með meistaraflokki KR og skorað eitt mark en hún hefur líkt og Olga og Hólmfríður spilað með ÍBV að undanförnu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.