Fotbolti.net
03.11.26 - 14:07
Elvar Geir Magnússon

Lokar samfélagsmiðlum sínum eftir að hafa verið úthrópaður morðingi

Jesus de Miguel lést í morgun.

Jesus de Miguel lést í morgun.

Canon

Mynd: EPA

Lögreglan hefur hafið rannsókn á samstuðinu sem leiddi til dauða spænska framherjans Jesus de Miguel, leikmanns Tenerife.

De Miguel sem var 30 ára, fékk þungt högg frá markverði Andorra FC, Jesus Owono, í miðjuhringnum og leiddi það til hjartastopps. Hann var svo úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í morgun.

Owono hafði komið á miklum hraða út úr marki sínu til að hreinsa boltann frá fékk samstundis rautt spjald og leikurinn, sem var í spænsku B-deildinni, var flautaður af eftir atvikið.

Owono, sem er 25 ára, er sagður vera algjörlega miður sín og ætlar að biðja fjölskyldu De Miguel afsökunar í eigin persónu. Stuðningsmenn Tenerife hrópuðu „morðingi“ að Owono þegar hann yfirgaf völlinn.
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
TENGT EFNI

Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni

Morðdeild lögreglunnar er með málið til rannsóknar en spænskir fjölmiðlar búast ekki við því að Owono fái dóm. Hann hefur lokað samfélagsmiðlum sínum eftir að hafa fengið gróf og harkaleg skilaboð.

„Jesus Owono er algjörlega miður sín, því augljóslega vill enginn meiða annan leikmann á svona hátt. Þetta var ótímabært úthlaup sem fær hræðilega úrskeiðis. þetta var ofbeldisfullt en engin ætlun var að valda skaða," segir blaðamaðurinn Iván Alvarez.

„Hann ætlar sér að hafa samband við fjölskyldu Jesús de Miguel eða einhvern sem er honum persónulega náinn, þegar tíminn er réttur. Hann vill gera það fyrst í einrúmi áður en hann gefur út opinbera yfirlýsingu."
 Jesus Owono er landsliðsmarkvörður Mðbaugs-Gíneu.

Jesus Owono er landsliðsmarkvörður Mðbaugs-Gíneu.

Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmenn hafa lagt blóm við heimavöll Tenerife.

Stuðningsmenn hafa lagt blóm við heimavöll Tenerife.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.