Fotbolti.net
27.11.26 - 13:42
Elvar Geir Magnússon

Freyr ræðir ekki meira við fjölmiðla fyrr en eftir leik

Freyr Alexandersson er í fjölmiðlafríi.

Freyr Alexandersson er í fjölmiðlafríi.

Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson ræddi ekkert við fjölmiðla í gær og gerir það ekki heldur í dag. Fjölmiðlafulltrúi Rosenborgar hefur tilkynnt fréttamönnum þetta.

„Félagið er í óvenjulegri stöðu fyrir einn mikilvægasta leik ársins. Í samráði við Frey höfum við ákveðið að hann muni ekki ræða við fjölmiðla til að geta einbeitt sér að leiknum á laugardaginn. Hann mun koma fram fyrir alla eftir leikinn gegn Molde," segir Jörgen Stenseth.

Það er útlit fyrir að Freyr verði næsti stjóri Swansea í ensku Championship-deildinni. er í Rosenborg er í harðri baráttu um Evrópusæti og þrír leikir eru eftir. Rosenborg mætir Molde í gríðarlega mikilvægum leik á morgun.
„Martraðarstaða fyrir Alfreð“
TENGT EFNI

„Martraðarstaða fyrir Alfreð“

Mögulegt er að Freyr kveðji Rosenborg eftir leikinn á morgun og taki við Swansea en liðið situr í 8. sæti ensku Championship-deildarinnar á meðan Rosenborg er í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
Freyr ræðir ekki meira við fjölmiðla fyrr en eftir leik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.