Fotbolti.net
03.11.26 - 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Máni Austmann leggur skóna á hilluna

Máni Austmann leggur skóna á hilluna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Máni Austmann Hilmarsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann ákvað það í lok tímabilsins í ár og staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net.

Máni er 28 ára sóknarmaður sem lék síðasta eina og hálfa ár ferilsins með Fylki en hafði þar á undan verið hjá Fjölni. Máni hefur farið víða á sínum ferli, er uppalinn hjá Stjörnunni og fór ungur út til FCK í Danmörku. Á sínum tíma skoraði hann fjögur mörk í 21 leik fyrir yngri landsliðin.

Hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki í Garðabæ með Stjörnunni 2017. Ári seinna lék hann með ÍR, svo tók hann tvö tímabil með HK, næst þrjú tímabil með Leikni og svo ár með FH.
Á heimasíðu KSÍ er Máni skráður með 242 meistaraflokksleiki og í þeim skoraði hann 52 mörk. Tímabilið 2024 var hans markahæsta en þá skoraði hann tólf mörk í 21 leik í Lengjudeildinni með Fjölni. Á liðnu tímabili skoraði hann sex mörk í 20 Lengjudeildarleikjum með Fylki.
Fór ungur út til FCK.

Fór ungur út til FCK.

Canon

Mynd: Instagram - FCK

Uppalinn í Stjörnunni.

Uppalinn í Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Lék eitt ár með ÍR.

Lék eitt ár með ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvö tímabil með HK.

Tvö tímabil með HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Máni (nær) og tvíburabróðirnn Dagur (fjær).

Máni (nær) og tvíburabróðirnn Dagur (fjær).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Og þrjú tímabil með Leikni.

Og þrjú tímabil með Leikni.

Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Eitt ár með FH.

Eitt ár með FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Tvö og háflt tímabil með Fjölni.

Tvö og háflt tímabil með Fjölni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvennu gegn FH fagnað. Máni lék í eitt og hálft tímabil með Fylki.

Tvennu gegn FH fagnað. Máni lék í eitt og hálft tímabil með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.