„Mikil vanvirðing gagnvart okkur sem höfum lagt hjarta okkar og sál í félagið"

Hulda Björg var fyrirliði Þórs/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA heyrir sögunni til.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ég frétti af þessu úti í bæ áður en fundurinn fór fram. Það fannst mér mjög sérstakt og svekkjandi, sérstaklega í ljósi þess að við leikmenn erum þeir sem þetta hefur bein áhrif á

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA varð Íslandsmeistari 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Og aftur 2017.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór/KA hélt sæti sínu í Bestu deildinni með útisigri á Víkingi í síðata mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hulda Björg var fyrirliði Þórs/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA vill fjölga tækifærum hjá fótboltakonum á Akureyri til að spila með liði í bænum. Þór/KA var í Bestu deildinni, Þór heldur því sæti en KA byrjar í 2. deild. Þór ætlar að koma af krafti inn af krafti og tefla fram góðu liði í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Hulda Björg Hannesdóttir var fyrirliði Þórs/KA og ræddi hún við Fótbolta.net um tíðindi gærdagsins.

KA slítur samstarfinu við Þór
Hver voru fyrstu viðbrögð við tíðindum gærdagsins?
„Fyrstu viðbrögðin voru sjokk og restin af deginum var svo rússíbani af tilfinningum. Mér hefði aldrei dottið í hug að við myndum standa í þessum sporum í dag. Þór/KA hefur verið stór hluti af lífi mínu og ég hef spilað fyrir félagið allan minn meistaraflokksferil. Það er því mjög sárt að fá svona tíðindi, bæði persónulega og sem fyrirliði hópsins," segir Hulda Björg.
Mikil vanvirðing
Hvað finnst þér um ákvörðun KA að slíta samstarfinu?
„Ég er gríðarlega vonsvikin með ákvörðunina, en ekki síður hvernig staðið var að henni gagnvart okkur leikmönnum og fólkinu innan Þór/KA. Það fór aldrei fram samtal við okkur um að þetta gæti orðið niðurstaðan. Það sem mér finnst kannski erfiðast er að við skyldum ekki fá að vita af ákvörðuninni fyrst. Ég hefði viljað að það hefði verið samtal og að okkur hefði verið gefinn kostur á að vita hvað væri í gangi áður en þetta varð að veruleika. Að þurfa að frétta þetta á sama tíma og fólk úti í bæ finnst mér mikil vanvirðing gagnvart okkur sem höfum lagt hjarta okkar og sál í félagið. Ég er mjög stolt af því sem við höfum afrekað og byggt upp í Þór/KA og finnst sorglegt að þetta endi með þessum hætti."
Hefur bein áhrif á leikmenn
Vissir þú að þetta gæti orðið niðurstaðan? Hafði eitthvað spurst út?
„Þessi umræða hefur vissulega komið upp áður í gegnum tíðina, en hún hefur aldrei farið svona langt áður. Ég vissi að það ætti að fara fram fundur um samstarfið, en ég var ekki meðvituð um að staðan væri þessi eða að ákvörðunin yrði sú að slíta samstarfinu. Ég frétti af þessu úti í bæ áður en fundurinn fór fram. Það fannst mér mjög sérstakt og svekkjandi, sérstaklega í ljósi þess að við leikmenn erum þeir sem þetta hefur bein áhrif á."
Miklar tilfinningar
Hvernig var fyrir leikmenn sem þú hefur talað við að heyra af þessu? Var einhver fundur í gær?
„Það eru auðvitað miklar tilfinningar í hópnum. Við höfum lagt mikinn tíma, metnað og hjarta í þetta félag og þetta snertir okkur því mjög persónulega. Við hittumst nokkur í Hamri í gær en það var ekki formlegur fundur heldur fyrst og fremst tækifæri til að hittast og ræða málin. Í dag verður svo formlegur fundur með leikmönnum og stjórnendum þar sem við fáum vonandi skýrari mynd af næstu skrefum."
Taka allt með sér í næsta kafla
Hvernig lítur framhaldið við þér?
„Það er auðvitað margt óljóst á þessari stundu. Ég hef átt samtöl við fólkið í Þór og fann strax fyrir miklum meðbyr og vilja til að vinna með okkur leikmönnum að næstu skrefum. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að finna þann stuðning núna."
„Þrátt fyrir sorgina yfir því að við munum ekki lengur spila undir merkjum Þór/KA eru mörg tækifæri fram undan. Ég tel það mikilvægt að muna að þótt samstarfinu ljúki þá fellur ekkert af því sem við höfum byggt upp saman. Árangurinn, minningarnar, liðsheildin og allt það starf sem hefur verið lagt í félagið hverfur ekki við þessa ákvörðun. Við tökum allt það sem við höfum lært og byggt upp með okkur inn í næsta kafla."
„Við ætlum að horfa jákvætt til framtíðar og einbeita okkur að því sem við getum haft áhrif á. Við höfum gengið í gegnum margt saman og vitum hvað það skiptir miklu máli að standa saman þegar á móti blæs. Það mun ekki breytast núna. Ég hef fulla trú á þessum hópi og hlakka til að sjá hvað við getum byggt upp saman hjá Þór," segir Hulda Björg að lokum.

Þór/KA heyrir sögunni til.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ég frétti af þessu úti í bæ áður en fundurinn fór fram. Það fannst mér mjög sérstakt og svekkjandi, sérstaklega í ljósi þess að við leikmenn erum þeir sem þetta hefur bein áhrif á

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA varð Íslandsmeistari 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Og aftur 2017.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór/KA hélt sæti sínu í Bestu deildinni með útisigri á Víkingi í síðata mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
