Fotbolti.net
27.11.26 - 10:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aston Villa til í að losa Garnacho í janúar

Aston Villa til í að losa Garnacho í janúar
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa er til í að senda Alejandro Garnacho til baka til Chelsea í janúar. Argentínski sóknarmaðurinn er á láni frá Chelsea og er kaupskylda í lánssamningnum. The Athletic greinir frá.

Garnacho er 22 ára og hefur einungis spilað í sjö leikjum frá komu sinni og einungis 34 mínútur í úrvalsdeildinni.

Chelsea leit svo á að auðvelt yrði fyrir Garnacho að uppfylla kaupskylduna en til þess að Villa verði að kaupa hann þarf hann væntanlega að koma oftar við sögu. Talið er að Aston Villa þurfi að greiða 42,5 milljónir punda til að fá Garnacho alfarið til sín.
Emery með Garnacho í kuldanum
TENGT EFNI

Emery með Garnacho í kuldanum

Garncaho hefur ekki verið í hóp í síðustu tveimur úrvasldeildarleikjum og var ekki með gegn Galatasaray í Meistaradeildarinni. The Athletic segir að frammistaða Garnacho á æfingum sé ekki nægilega öflug til að fá að spila reglulega.

Aston Villa væri því opið fyrir því að senda Garnacho frá sér en til þess að það gangi eftir þarf erlent félag að ná samkomulagi við Chelsea um félagaskipti. Aston Villa hefur ekki leyfi til að senda hann til baka því samið var um lán út tímabilið. Leikmaður má ekki fara á láni til tveggja enskra félaga á sama tímabilinu. Hann hefur þegar verið skráður hjá Chelsea og Aston Villa og til þess að þriðja félagið geti skráð hann á þessu tímabili þarf hann því að fara erlendis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.