Fotbolti.net
27.11.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ÍTF greiðir 80 milljónir til félaga í Bestu deild karla

Tekjur af réttindum hafa rúmlega þrefaldast

ÍTF greiðir 80 milljónir til félaga í Bestu deild karla
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍTF, Íslenskur Toppfótbolti, greiðir 80 milljónir króna til þeirra 17 félaga sem voru með lið í Bestu deild karla á árunum 2022-26.

Tekjur af réttindum Bestu deildar karla hafa rúmlega þrefaldast frá árinu 2021 og hefur ÍTF framlengt samninginn við Genius Sports til 2030.

Áhugi á Bestu deild karla hefur þá vaxið um 47% frá árinu 2021.
Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur
TENGT EFNI

Rýnir í tölur Bestu deildarinnar - Meiri tekjur, meira áhorf og betri árangur

Úr fréttatilkynningu ÍTF
Greiðslan er uppgjör fyrsta samningstímabils ÍTF um gagna- og streymisréttindi deildarinnar, þar sem Genius Sports er stærsti samningsaðilinn. Upphæðinni er skipt eftir því hve mörg tímabil hvert félag lék í deildinni.

Árið 2021 voru öll réttindi deildarinnar seld fyrir 150 m.kr. Í ár námu tekjur af réttindum 496 m.kr. og á árunum 2022–2026 runnu samtals 1.628 m.kr. beint til félaganna að uppgjörinu meðtöldu.

Samningurinn við Genius hefur nú verið framlengdur til 2030.

Áhugi á deildinni hefur vaxið á sama tíma. Samkvæmt árlegri könnun Gallup hefur áhorfendahópur Bestu deildarinnar stækkað um tæplega helming frá árinu 2021, eða um 47%.

„Uppgjörið sýnir að vinnan með gagna- og streymisréttindin skilar sér beint til félaganna. Fyrsta samningstímabilið var lærdómsríkt, bæði fyrir okkur og félögin, og nú höfum við tryggt betri kjör til 2030. Við ætlum áfram að fjárfesta í deildinni í víðum skilningi og hjálpa
félögunum í landinu að láta íslenskan fótbolta vaxa. Þannig eykst virði hennar til framtíðar,“
segir Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF.
ÍTF greiðir 80 milljónir til félaga í Bestu deild karla
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.