Fotbolti.net
27.11.26 - 12:54
Albert Guðmundsson

Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Sölvi Tryggvason

Taktu þátt í Fantasydeild 38 umferða og Fótbolta.net! Kóðinn er 10k1ov

Sölvi Tryggvason heldur úti vinsæla hlaðvarpinu Podcast með Sölva Tryggva

Sölvi Tryggvason heldur úti vinsæla hlaðvarpinu Podcast með Sölva Tryggva

Canon

Mynd: Sýn

Nýr þáttur af 38 umferðum kom út í vikunni en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban en þeir félagar taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessari viku var það Sölvi Tryggvason hlaðvarpsstjórnandi.
Liðið hans Sölva, sem ber nafnið "Hakuna Matata", notaði Free hit spilið sitt í síðustu umferð og sótti 48 stig í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið var skipað eftirfarandi leikmönnum:

Markmaður
Kinsky (7)

Varnarmenn
De Cuyper (1), Calafiori (1), Konsa (1), Tarkowski (-4)

Miðjumenn
Gross (4), Rogers (5), Cherki (1), Tavernier (8)

Sóknarmenn
Haaland C (4), Jackson (2)

Free hit bekkur
Verbruggen (2), Van Hecke (6), Schade (1), Calvert-Lewin (9)

Þrátt fyrir að vera Liverpool aðdáandi er Sölvi með engan Liverpool mann í sínu liði, hann var hins vegar með einn leikmann úr Liverpool borg sem var Tarkowski í liði Everton. Því miður fyrir Sölva náði hann sér í rautt spjald og -4 stig hans framlag til liðsins þessa vikuna. Sölvi treysti Haaland fyrir fyrirliðabandinu eins og margir aðrir stjórar og uppskeran ekki góð, aðeins 2 stig. Það borgaði sig að spila Free hit spilinu því Sölvi fékk 18 stig af bekknum sem verður seint rifið upp úr götunni.

Við óskum Sölva góðs gengis í ár og vonum að honum takist að byggja ofan á þessa góðu umferð.

Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net, Spotify og á YouTube.

Frestur til að gera breytingar fyrir 12. umferð er kl 18:30 föstudaginn 27. nóvember. Umferðin hefst á leik Nottingham Forest og Chelsea í kvöld kl 20:00

Liðið hans Sölva er tekið fyrir á mínútu 1:18:05 í þættinum sem má sjá hér fyrir neðan.

Sölvi spilaði Free hit spilinu þessa vikuna og sótti 18 stig af bekknum

Sölvi spilaði Free hit spilinu þessa vikuna og sótti 18 stig af bekknum

Canon

Mynd: FPL

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.