27.11.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Sakar Neuer um framhjáhald á meðan hún var barnshafandi

Anika, fyrrum eiginkona Manuel Neuer.

Mynd: EPA

Anika, fyrrum eiginkona Manuel Neuer.

Mynd: EPA
Anika, fyrrum eiginkona Manuel Neuer, sakar markvörðinn um að hafa haldið framhjá sér á meðan hún var ólétt. Hún skýtur á Neuer á samfélagsmiðlum og segir að það sé annað stig illsku að svíkja barnshafandi konur.
Parið gifti sig formlega 2023 og hélt svo stóra brúðkaupsveislu árið 2025. Nokkrum dögum eftir að þau eignuðust sinn annan son tilkynnti Neuer henni að hann vildi slíta hjónabandinu.
Neuer, sem er 40 ára markvörður Bayern München og þýska landsliðsins, hefur síðan verið myndaður með konu, sem BILD segir vera 23 ára sjúkraþjálfara sem hann hefur unnið með. Þau sáust saman í Brasilíu og einnig í september í fríi á Sikiley.

„Ímyndið ykkur að horfa á konuna sem gengur með barnið þitt, sjá hana ganga í gegnum allt sem fylgir meðgöngu og þú hefur samt þá illa hug að svíkja hana á bak við bakið á henni. Þetta eru ekki „mistök“. Þetta er val. Eigingjörn, hjartalaus og svívirðileg ákvörðun," skrifaði Anika á samfélagsmiðla.
Neuer lék 128 landsleiki fyrir Þýskaland en hefur langt landsliðshanskana á hilluna. Hann var lykilmaður í liði Þýskalands sem vann HM árið 2014. Hann hefur haldið áfram að spila fyrir Bayern München en er nú frá keppni vegna ökklameiðsla.

Markvörðurinn Manuel Neuer.

Mynd: EPA