Fotbolti.net
03.12.05 - 07:54
Magnús Már Einarsson

Ólafur Páll í Fjölni (Staðfest)

Ólafur Páll fagnar marki ásamt Atla Guðnasyni í sumar.

Ólafur Páll fagnar marki ásamt Atla Guðnasyni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Fjölnismenn hafa fengið Ólafur Pál Johnson frá KR en hann var einmitt í láni hjá Grafarvogsliðinu í sumar þegar að það endaði í fjórða sætinu í fyrstu deildinni.
Hinn tvítugi Ólafur ku ekki hafa verið inni í plönum Teits Þórðarsonar nýráðins þjálfara KR og því ákvað hann að fara aftur til Fjölnis.

Ólafur lék sautján leiki með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra, skoraði eitt mark sem kom í stórtapi gegn Víkingi R. í fyrstu umferð og þá fékk hann eitt rautt spjald en það var í útisigri á HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.