Fotbolti.net
03.12.05 - 18:51
Hafliði Breiðfjörð

Jens Sævarsson í Fylki (Staðfest)

Jens í leik gegn Fylki í sumar

Jens í leik gegn Fylki í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Jens Elvar Sævarsson leikmaður Þróttar er genginn í raðir Fylkis en hann fékk leikheimild með sínu nýja félagi í dag. Jens var samningsbundinn Þrótti út næsta ár en sá samningur hefur nú verið felldur úr gildi.
Jens hafði tekið ákvörðun um að ganga til liðs við Fylki um miðjan nóvember og hefur leikið æfingaleiki með þeim. Hann hefur nú fengið leikheimild með liðinu en Jens er 25 ára gamall varnarmaður sem getur einnig spilað á miðjunni.

Jens sem er uppalinn hjá Þrótti lék 15 leiki með sínu gamla liði í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim tvö mörk. Víkingur hafði einnig áhuga á að fá hann til liðs við sig en hann valdi Fylki.

Vissir þú að:
Uppáhaldsleikmaður Jens er Alessandro Nesta varnarmaður AC Milan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.