04.01.06 - 14:52
Hafliði Breiðfjörð
Laurent Robert til Benfica (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski miðvallarleikmaðurinn Laurent Robert er genginn í raðir portúgölsku meistaranna Benfica og þar með hefur verið bundinn endi á lánssamning hans við Portsmouth en hann er í eigu Newcastle.
Newcastle greiddi 10,5 milljónir punda fyrir Robert árið 2001 en hann hætti hjá félaginu í sumar eftir deilur við stjórann, Graeme Souness. Hann er þrítugur og gerði þriggja og hálfs árs samning við Benfica.
,,Þetta er magnað félag. Að geta spilað í Meistaradeildinni er frábært og þess vegna er ég hérna. Þeir sýndu mér mikinn áhuga. Ég er mjög ánægður með að vera hérna," sagði Robert í dag.
,,Að vita að þjálfari eins og Koeman vildi virkilega fá mig í liðið var nóg til að fullvissa mig um að þetta væri rétt ákvörðun."
Á stuttum tíma hjá Portsmouth skoraði Robert eitt mark í 17 leikjum en þar eins og áður lenti hann í útistöðum. Hann var tvisvar sektaður af Newcastle þegar hann gekk í raðir Portsmouth fyrir að gagnrýna Souness og svo var honum refsað af Portsmouth fyrir að neita að sitja á beknum í leik gegn Sunderland í október.
Hann segir hinsvegar að honum hafi samið vel við Harry Redknapp núverandi stjóra Portsmouth.
,,Mér samdi vel við Harry Redknapp," sagði hann. ,,Ef einhver getur bjargað Pompey getur hann það."
Robert á að baki níu landsleiki fyrir Frakkland árið 2001 en hann sagði að hann muni nú einbeita sér að því að vinna sér í HM hóp Frakka.
,,Heimsmeistaramótið virðist langa leið frá fyrir leikmann eins og mig en ég hef ekki gefið upp alla von. Ég held enn að ég geti gert mitt fyrir landið og myndi vilja annað tækifæri til að sanna það."