Fotbolti.net
04.01.06 - 19:35
Magnús Már Einarsson

Olisadebe til Portsmouth (Staðfest)

Olisadebe til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Pólski sóknarmaðurinn Emanuel Olisadebe hefur gert samning við Portsmouth út leiktíðina. Þessi 27 ára ára gamli leikmaður fékk að heyra það fyrir skömmu frá gríska liðinu Panathinaikos að hann mætti fara frá liðinu en samningur hans við það átti að renna út næsta sumar.
Olisadebe var til reynslu hjá Portsmouth á dögunum en talið var að liðið myndi ekki semja við hann þar sem leikmaðurinn hefur átt í meiðslavandræðum undanfarin ár. Nú ku hann víst hinsvegar hafa gert samning við liðið um að hann fái borgað eftir því hvað hann spilar mikið með liðinu.

,,Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við Portsmouth og ég er spenntur yfir því verkefni að spila í úrvalsdeildinni sem er fyrir mér besta deild í heimi. Ég vonast til að spila og gera v el fyrir liðið og mér líður vel að vera kominn aftur eftir að hafa verið á reynslu í síðasta mánuði," sagði Olisadebe við heimasíðu Porstmouth eftir að hafa skrifað undir samning við liðið síðdegis.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.