Fotbolti.net
04.01.06 - 20:00
Magnús Már Einarsson

Maniche á láni til Chelsea (Staðfest)

Maniche á láni til Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur fengið portúgalska miðjumanninn Maniche að láni út þessa leiktíð frá rússneska liðinu Dynamo Moskvu. Þessi 28 ára leikmaður hefur ekki leikið í Meistaradeildinni á leiktíðinni og því er hann löglegur með Chelsea þar.
Maniche kemur á fínum tíma til Chelsea en Michael Essien meiddist í síðasta leik liðsins og verður frá í einhvern tíma. Talið er að Maniche verði eini leikmaðurinnn sem Chelsea kaupir í mánuðinum en Jose Mourinho stjóri liðsins sagði á dögunum: ,,Við munum fá engan eða einn leikmenn í félagaskiptaglugganum. Ef við fáum einn leikmann verður það miðjumaður.

Sjálfur sagði leikmaðurinn á dögunum: ,,Ég hef fengið tilboð frá öðrum stórum evrópskum liðum en eftir að Chelsea sýndi áhuga var bara eitt lið í myndinni. Ég væri brjálaður að hafna þeim, bæði vegna stjórans og vegna þess að ég hef þekkt suma leikmanna þeirra í mörg ár."

Hann hefur verið undir stjórn Mourinho æði hjá Porto og Benfica og því þekkjast þeir vel en Maniche sagði um þennan knáa stjóra á dögunum: ,,Mourinho var lykilatriði í því að ég samdi, hann hefur verið eftir mér um nokkurn tíma. Hann er lærimeistarinn minn. Hann þekkir mig frá tíma mínum hjá Porto og Benfica. Ég skulda honum stærstu minningu mína í fótbolta og vonast til að endurtaka þann árangur hjá Chelsea. Ég hef verið orðaður við skipti til Englands undanfarin ár en nú virðist það loksins ætla að gerast."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.