Fotbolti.net
04.01.07 - 10:45
Hörður Snævar Jónsson

Jones frá Man Utd til Derby (Staðfest)

Jones í leik með United.

Jones í leik með United.

Canon

Mynd: Getty Images

David Jones 22 ára gamall miðjumaður gekk til liðs við Derby frá Manchester United nú í dag. Kaupverðið er 1 miljón punda, Jones hefur verið á láni hjá Derby frá því í nóvember og nú í dag var gengið frá kaupunum.
Jones hefur spilað fjóra leiki fyrir aðallið Manchester og hefur einnig leikið fyrir u-21 árs lið Englands.

Billy Davies stjóri Derby var ánægður með að hafa gengið frá kaupunum. ,,Ég er ánægður með að hafa tryggt mér svona ungan og hæfileikaríkan leikmann."

,,Ég er viss um að stuðningsmenn Derby séu ánægðir með að við séum að fá góðan leikmann eftir að hafa séð hann. David hefur komið sér vel fyrir hjá félaginu og hefur sýnt mikil gæði. Ég er viss um að hann verður betri og betri með hverjum leiknum."

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.