04.01.07 - 13:30
Andri Fannar Stefánsson
Montella til Fulham á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Vincenzo Montella hefur gengið til liðs við Fulham í ensku úrvalsdeildinni á sex mánaða lánssamningi frá Roma.
Montella sem er 32 ára gamall var í landsliðshópi Ítala á HM árið 2002 var á áttunda tímabili sínu hjá Roma en hann er einnig þekktur sem ,,flugvélin" vegna þess hvernig hann fagnar mörkum sínum.
,,Roma hafa gengið frá samkomulagi við Fulham um að lána Vincenzo Montella til enska liðsins," stendur í tilkynningu á vefsíðu Roma.
Montella var hluti af liði Roma þegar þeir unnu Seríu A árið 2001 og skoraði hann slatta af mikilvægum mörkum á góðum tíma fyrir liðið þegar þeir unnu deildina.
Eins og við höfum áður greint frá er talið líklegt að hann verði í hóp Fulham sem mætir Leicester í enska bikarnum á laugardag.

Heimild: BBC