04.01.07 - 15:33
Magnús Már Einarsson
Valur lánar Barry Smith til Patrick Thistle (Staðfest)

Barry Smith í baráttunni í Evrópuleik gegn Bröndby.

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Barry Smith í baráttunni í Evrópuleik gegn Bröndby.

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr
Valur hefur lánað varnar og miðjumanninn Barry Smith til skoska liðsins Patrick Thistle og verður hann þar til 1.maí en þá kemur hann aftur til Hlíðarendafélagsins. Þetta staðfesti Ótthar Edvardsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Vals við Fótbolti.net í dag.
Nái Smith að fá leikheimild í tæka tíð mun hann leika sinn fyrsta leik fyrir Patrick Thistle á laugardag, gegn Ross County í bikarnum.
Smith sem er 32 ára gekk til liðs við Val síðastlið vor og skoraði hann eitt mark í fimmtán leikjum í Landsbankadeildinni í sumar auk þess sem að hann lék tvo leiki í VISA-bikarnum með félaginu.
Patrick Thistle leikur í næstefstu deild í Skotlandi en sem stendur er liðið í þriðja sæti þar með 31 stig, þremur stigum á eftir St Johnstone sem er í öðru sætinu.

Heimild: Heimasíða Patrick Thistle