Fotbolti.net
04.01.07 - 17:45
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Robert Koren til WBA (Staðfest)

Koren (til hægri) í leik með slóvenska landsliðinu

Koren (til hægri) í leik með slóvenska landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hafa fengið til sín miðjumanninn Robert Koren á átján mánaða samningi eftir að hann fór frá Lillestrom á frjálsri sölu.
Koren er 26 ára gamall slóvenskur landsliðsmaður og höfðu nokkur félög eins og Manchester City, Leeds og Cardiff sýnt áhuga á kappanun.

,,Robert er teknískur leikmaður sem er einnig hungraður í að sanna sig í enska boltanum. Hann getur spilað allstaðar á miðjunni. Hann mun auka samkeppni í liðinu en það var einnig mikil samkeppni fyrir," sagði Tony Mowbray stjóri WBA.

Búist er við því að það verði mikið að gera hjá West Brom á næstunni á leikmannamarkaðnum þar sem menn eins og Nathan Ellington, Nigel Quashie og Zoltan Gera gætu farið frá félaginu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.