04.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Fitz Hall til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Queens Park Rangers, sem er í fallbaráttu í ensku Championship deildinni, hefur keypt varnarmanninn Fitz Hall frá Wigan Athletic en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Luigi De Canio stjóri QPR hefur verið duglegur að fá leikmenn undanfarna daga en auk Hall hefur hann krækt í Patrick Agyemang, Hogan Ephraim, Akos Buzsaky, Matthew Connolly, Gavin Mahon ig Kieran Lee.
Hall sem er 27 ára gamli gerði fjögurra og hálfs árs samning við QPR en hann hefur fengið fá tækifæri með Wigan á leiktíðinni og aðeins komið við sögu í tveimur leikjum.
Hall kom til Wigan árið 2006 en áður lék hann með Oldham, Southampton og Crystal Palace.

Heimild: Sporting Life