04.01.08 - 11:27
Magnús Már Einarsson
Jonny Evans til Sunderland á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur fengið varnarmanninn Jonny Evans að láni frá Manchester United út tímabilið.
Þessi norður-írski landsliðsmaður var á síðasta tímabili einnig í láni hjá Sunderland en þá vann liðið sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Evans sem er tvítugur mun fara beint inn í leikmannahóp Sunderland fyrir leikinn gegn Wigan í enska bikarnum á morgun.
Í síðasta mánuði var Evans handtekinn þar sem hann var grunaður um nauðgun en honum var síðar sleppt úr haldi.

Heimild: BBC