Fotbolti.net
04.02.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Þóra B. Helgadóttir til Leuven (Staðfest)

Þóra B. Helgadóttir til Leuven (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir hefur gengið til liðs við við belgíska félagið Leuven á lánssamningi en þetta staðfesti hún við Fótbolti.net í gær. Þóra sem er 25 ára gömul hefur leikið með Breiðablik undanfarin ár en eins og við greindum frá í síðasta mánuði er hún að flytjast til Belgíu vegna atvinnu sinnar.
Leuven er í fimmta sæti í belgísku deildinni en toppbaráttan þar er nokkuð jöfn meðal fimm efstu liðanna. Leuven er með nokkrar stelpur í A-landsliði Belga en landsliðið er í 30 sæti á heimslista FIFA á meðan það íslenska er í 21.sæti. Þá eru yngri landsliðin hjá Belgum á mikilli siglingu og U-19 ára liðið þeirra komst í síðustu úrslitakeppni.

Þóra sem hefur verið lykilmaður í liði Blika skrifaði í nóvember síðastliðnum undir þriggja ára samning við félagið en hún fer eins og fyrr segir til Leuven á lánssamningi.

Þóra mun halda út tólfta febrúar næstkomandi en þessi sterki markvörður á 49 landsleiki að baki og var í lok síðasta árs þriðja í kjöri á knattspyrnukonu ársins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.