04.02.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Thomas Myhre frá Charlton til Viking (Staðfest)

Myhre er á heimleið

Mynd: Getty Images

Myhre er á heimleið

Mynd: Getty Images
Norski landsliðsmaðurinn Thomas Myhre hefur ákveðið að ganga til liðs við Viking frá Stavanger á frjálsri sölu frá Charlton í sumar og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning.
Alan Pardew, stjóri Charlton, vildi ekki leyfa þessum 33 ára gamla markverði að fara frá félaginu fyrr en samningur hans rennur út næsta sumar.
,,Ég ákváð að ganga til liðs við Viking fyrir löngu síðan. Ákvörðunin var tekin með fjölskyldunni. Konan mín er frá Stavanger og ég var þar í fimm góð ár áður, það er ástæðan fyrir ákvörðun minni," sagði Myhre við norska fjölmiðla.
Myhre sagðist vilja fara til Noregs fyrr en er ákveðinn í að hjálpa Charlton eins og hann getur þangað til: ,,Það er ekki erfitt að skilja af hverju þeir vilja ekki leyfa mér að fara þegar þeir eru að berjast við fall."

Heimild: Sky