Afturelding hefur kynnt þrjá nýja leikmenn fyrir áttökin í 2. deild næsta sumar.
Þær Magðalena Ólafsdóttir (2000) og Karen Dæja Guðbjartsdóttir (2005) eru komnar aftur eftir stutt stopp hjá Smára. Karen hóf meistaraflokksferilinn hjá Aftureldingu en hún kom við sögu í einum leik hjá Smára í fyrra en er komin aftur í Mosfellsbæinn.

Magðalena spilaði með KA, Þór og Hömrunum fyrir norðan áður en hún fór í borgina og spilaði með Fram og HK áður en hún fór í Aftureldingu árið 2023. Hún var síðan hjá Smára í fyrrasumar.
Þá er Hafdís María Einarsdóttir komin í Aftureldingu frá ÍR. Hún er fædd árið 2007 og er uppalin í Val. Hún hefur spilað með KH ásamt ÍR.
Athugasemdir