Halldór Jón Sigurður Þórðarson og Hilmar Þór Kjærnested Helgason verða ekki með Fylki á komandi tímabili. Þetta hefur Fótbolti.net fengið staðfest.
Samningur Halldórs Jóns við Fylki rann út eftir síðasta tímabil og er ljóst að hann verður ekki áfram í Árbænum. Meiðsli settu strik í reikninginn síðasta sumar en hann náði einungis að spila sjö Lengjudeildarleiki og skoraði tvö mörk í þeim leikjum.
Halldór Jón er fjölhæfur leikmaður, hefur spilað í bakverði, á kantinum og sem fremsti maður á sínum ferli. Hann er uppalinn hjá Fram og hefur einnig leikið með Hetti, Aftureldingu, Víkingi, ÍR, Gróttu og ÍBV á sínum ferli. Hann er fæddur árið 1996 og varð Íslands- og bikarmeistari með liði Víkings 2021.

Hilmar Þór var á síðasta tímabili varamarkvörður Fylkis en hann verður ekki áfram. Það hefur spurst út að hann sé búinn að leggja hanskana á hilluna. Ljóst er að Fylkir er í leit að markmanni til að veita Ólafi Kristófer Helgasyni samkeppni.
Hilmar er fæddur árið 2005 og kom í Fylki frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2024. Hann var hluti af leikmannahópi Gróttu tímabilið 2022. Árið 2021 lék hann einn vináttuleik með U17 ára landsliðinu gegn Finnlandi.
Athugasemdir