Franski miðjumaðurinn N'Golo Kante er loksins genginn til liðs við Fenerbahce frá Al-Ittihad en tyrkneska félagið greindi frá þessu í nótt.
Félagaskiptin virtust ekki ætla ganga í gegn þar sem pappírar frá Al-Ittihad skiluðu sér ekki á réttum tíma fyrir lok félagaskiptagluggans.
Félagaskiptin virtust ekki ætla ganga í gegn þar sem pappírar frá Al-Ittihad skiluðu sér ekki á réttum tíma fyrir lok félagaskiptagluggans.
Kante er sagður hafa verið mjög ósáttur við að félagaskiptin færu ekki í gegn og skrópaði á æfingu. Fenerbahce og Al-Ittihad náðu samkomulagi við FIFA sem leyfði skiptunum að fara í gegn, þessi 34 ára gamli miðjumaður skrifar undir samning út árið 2028.
Marokkóski framherjinn Youssef En-Nesyri fór til Al-Ittihad frá Fenerbahce í staðinn en hann mun koma til með að fylla skarðið sem Karim Benzema skildi eftir sig þegar hann fór til Al-Hilal á dögunum.
???? Volume up! ???????? pic.twitter.com/fgXjwT2hg1
— Fenerbahçe SK (@Fenerbahce) February 3, 2026
Athugasemdir

