Kantmaðurinn Kári Sigfússon er kominn aftur heim í Fylki en þetta var tilkynnt á Instagram-síðu Fylkismanna í kvöld.
Kári er 23 ára gamall og spilað með Keflvíkingum síðustu tvö tímabil, en hann var meðal annars valinn besti leikmaður liðsins á lokahófi félagsins í haust.
Hann skoraði 10 mörk fyrir Keflavík sem vann sér sæti í Bestu deildina í gegnum umspilið.
Kári er uppalinn Fylkismaður og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með félaginu árið 2020. Einnig hefur hann spilað með Gróttu, Elliða og Þrótti Vogum.
Í vetur var hann orðaður við fleiri félög í Bestu deildinni auk þess sem það var áhugi frá Finnlandi og AB í Danmörku, en hann valdi það að fara aftur heim í Fylki.
Samningurinn er til tveggja ára og mun þetta svo sannarlega hjálpa Fylkismönnum og markmiði félagsins um að komast aftur upp í efstu deild.
Athugasemdir



