Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 11:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lék þrjá leiki með ÍA og semur í dönsku C-deildinni (Staðfest)
Mynd: ÍA
Danski miðjumaðurinn Jonas Gemmer er genginn í raðir FC Helsingör í Danmörku. Hann var fenginn til ÍA síðasta sumar en spilaði einungis þrjá leiki fyrir félagið.

Gemmer er þrítugur og á að baki rúmlega 110 leiki í dönsku úrvalsdeildinni. Á sínum tíma lék hann 28 leiki fyrir yngri landslið Danmerkur.

Hann náði ekki að sýna sitt rétta andlit með ÍA og yfirgf félagið áður en tímabilið kláraðist.

Helsingör situr í neðsta sæti deildairnnar, átta stigum frá öruggu sæti þegar deildin er hálfnuð. Íslendingaliðið AB er á toppi deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner