fim 04. mars 2021 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viktor Karl framlengir við Blika
Viktor fagnar marki síðasta sumar.
Viktor fagnar marki síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Karl Einarsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til loka ársins 2023.

Þetta var tilkynnt í kvöld en Viktor, sem er fjölhæfur miðjumaður, hefur leikið með Blikum frá 2019 eftir nokkur ár í atvinnumennsku í Hollandi í Svíþjóð. Síðasta sumar spilaði hann 14 leiki í Pepsi Max-deild karla og skoraði fimm mörk.

Tilkynning Blika
Þau ánægulegu tíðindi voru að berast að knattspyrnumaðurinn öflugi, Viktor Karl Einarsson, hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks til loka ársins 2023.

Viktor Karl, sem er uppalinn Bliki, fór ungur að árum í atvinnumennsku og spilaði í Hollandi og Svíþjóð. Hann kom síðan til baka til Breiðabliks árið 2019 og hefur fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins.

Viktor Karl er 24 ára gamall og hefur leikið 60 leiki með Blikaliðinu og skorað í þeim 13 mörk. Hann á að baki 30 landsleiki með yngri landsliðum Íslands. Viktor var valinn leikmaður ársins hjá meistarflokki karla árið 2020.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Blika og það verður gaman að fylgjast með þessum öfluga leikmann á vellinum í sumar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner