Danijel Dejan Djuric verður ekki lánaður til Serbíu frá króatíska liðinu NK Istra eins og Fótbolti.net greindi frá í síðasta mánuði.
Danijel var mættur til Serbíu og hafði samþykkt að ganga í raðir Zeleznicar Pancevo á láni út tímabilið á lokadegi serbneska gluggans en seinagangur varðandi pappíra olli því að skiptin gengu ekki í gegn.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net æfir Danijel nú einn í Króatíu og er hann að öllum líkindum á förum frá félaginu.
Spurning er hvort Danijel snúi aftur heim til Íslands en það hefur einnig verið áhugi frá Svíþjóð á þessum 23 ára gamla sóknarsinnaða miðjumanni.
Athugasemdir