Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. apríl 2021 19:40
Aksentije Milisic
Kjartan Henry frá í tæpan mánuð
Mynd: Getty Images
Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður danska B-deildarliðsins Esbjerg, er meiddur og verður frá í tæpan mánuð.

Esbjerg er í mikillri baráttu um að komast upp í efstu deild og því eru þetta slæmar fréttir fyrir Ólaf Kristjánsson og hans lærisveina.

Kjartan Henry fékk högg á hnéð í leik sem var fyrir landsleikjahléið og talið var að hann myndi vera klár í slaginn eftir að landsleikjaglugginn myndi klárast.

Svo reyndist hins vegar ekki og eru meiðslin því verri en talið var í fyrstu. Ólafur Kristjánsson sagði í viðtali við JydskeVelkysten að Kjartan verður ekki klár á næstunni.

Andri Rúnar Bjarnason er einnig á mála hjá liðinu og talaði Ólafur Kristjánsson um það í viðtalinu að nú verði aðrir leikmenn liðsins að stíga upp í fjarveru Kjartans.
Athugasemdir
banner
banner
banner