Fotbolti.net
09.09.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Lokaumferð 2. deildar á laugardag - Selfossi dugir jafntefli

Viðar Örn Kjartansson er markahæstur í 2. deild með 21 mark.

Viðar Örn Kjartansson er markahæstur í 2. deild með 21 mark.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lokaumferð 2. deildar karla fer fram á laugardaginn og þá ræðst hvaða lið fer upp í Lengjudeildina með Haukum og hvaða lið fellur með Hvíta riddaranum niður í 3. deild.

laugardagur 12. september
14:00 Selfoss-KFG (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Kári-Haukar (Akraneshöllin)
14:00 Þróttur V.-Magni (Vogaídýfuvöllur)
14:00 Víkingur Ó.-KFA (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Dalvík/Reynir-Hvíti riddarinn (Dalvíkurvöllur)
14:00 Kormákur/Hvöt-Fjölnir (Blönduósvöllur)
Harkið - Nágrannar en ekki vinir
TENGT EFNI

Harkið - Nágrannar en ekki vinir

Selfoss og Kári geta komist upp
Haukar fengu um síðustu helgi bikar í hendurnar bikar fyrir sigur í deildinni. Í lokaumferðinni ræðst hvaða lið fylgir þeim upp og þar er Selfoss í bílstjórasætinu.

Selfoss tekur á móti KFG sem berst fyrir lífi sínu í deildinni. Selfoss vann 3-2 útisigir í Garðabæ þegar liðin mættust fyrr á tímabilinu. Selfyssingum dugir jafntefli til að innsigla annað sætið.

Kári fær Hauka í heimsókn í Akraneshöllina og þarf að vinna til að eiga möguleika á Lengjudeildinni. Kári hrifsar annað sætið með sigri ef Selfoss tapar því liðið er með betri markatölu.

Þróttur Vogum og KFG í fallhættu
Þróttarar eru í fallsæti og dugir ekkert annað en sigur gegn Magna á heimavelli til að eiga möguleika á að halda sér. Með sigri er von Þróttar ansi sterk því liðið heldur sér þá ef KFG nær ekki að vinna Selfoss (sem er að berjast um að komast upp eins og áður hefur komið fram).

Garðbæingarnir í KFG halda sér ef Þróttur vinnur ekki en ef Þróttur vinnur þurfa þeir að vinna óvæntan sigur á Selfossi.
Þróttur Vogum er í fallsæti.

Þróttur Vogum er í fallsæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar21+2747
2Selfoss21+1842
3Kári21+2339
4KFA21+1029
5Dalvík/Reynir21-328
6Víkingur Ó.21-1228
7Kormákur/Hvöt21+527
8Fjölnir21+227
9Magni21-1825
10KFG21-1922
11Þróttur V.21-1020
12Hvíti riddarinn21-2317
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.