Fotbolti.net
09.09.26 - 11:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gefa út að Arsenal átti að fá víti gegn Villa

Gefa út að Arsenal átti að fá víti gegn Villa
Canon

Mynd: EPA

Arsenal vann 0-1 útisigur á Aston Villa í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fyrir níu dögum síðan. Bukayo Saka skoraði sigurmarkið.

Enska úrvalsdeildin hefur gefið út að Arsenal átti að fá vítaspyrnu í leiknum þegar Ian Maatsen renndi sér og fór í Bruno Guimaraes inn á vítateig Aston Villa seint í leiknum.
Atvikið var skoðað í VAR en ákveðið var að breyta ekki ákvörðun dómarans Jarred Gillett. KMI-nefnd úrvalsdeildarinnar, sem skoðar stór atvik í leikjum, hefur gefið út að Maatsen hefði gerst brotlegur og hann hefði átt að fá rautt spjald fyrir tæklinguna.

„Snertingin við fótinn sem Guimaraes stóð í var augljós og Maatsen snerti ekki boltann."

Nefndin er á því að VAR hefði átt að grípa inn í og að Maatsen hefði átt að fá sitt seinna gula spjald fyrir brotið.

Gefa út að Arsenal átti að fá víti gegn Villa
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.