Fotbolti.net
04.04.21 - 15:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mourinho: Ég er pirraður - Ekki bara Chelsea heldur fullt af liðum

Pirraður

Pirraður

Canon

Mynd: Getty Images

„Ég er pirraður. Við þurftum að vinna þennan leik og komum hingað til að vinna. Við vorum ekki langt frá því en við bjuggum til ójafnvægi með fjölda varnarmistaka. Við gáfum Newcastle möguleika á að vera í leiknum," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, eftir 2-2 jafntefli gegn Newcastle.

Lið Mourinho eru þekkt fyrir að halda forystu. Mourinho tjáði sig um þetta: „Þjálfarinn er sá sami en aðrir leikmenn."
En hvað um Meistaradeildarsæti?

„Það er alltaf talað um að Chelsea hafi tapað í gær og þess vegna eigum við séns. Ef þetta væri bara Chelsea myndi ég segja að við værum bara þremur [tveimur] stigum á eftir. En það er ekki staðan. Það er Liverpool, Everton, West Ham. Fullt af liðum sem eru þarna," sagði Mourinho.

Joelinton kom Newcastle yfir í leiknum en Harry Kane kom Tottenham yfir með tveimur mörkum. Joe Willock jafnaði svo leikinn þegar skammt var til leiksloka.


Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.