Fotbolti.net
01.11.26 - 17:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Get fundið til með Liverpool að vera ekki búið að fá allavega hálft víti"

„Get fundið til með Liverpool að vera ekki búið að fá allavega hálft víti"
Canon

Mynd: EPA

Arsenal er marki yfir gegn Liverpool í hálfleik þar sem Kai Havertz skoraði eftir stundafjórðung.

Liverpool sótti hart að marki Arsenal í kjölfarið fram að hálfleik en tókst ekki að ógna David Raya. Liverpool vildi fá nokkur víti þar sem varnarmenn Arsenal héldu og toguðu í sóknarmenn Liverpool.
Eiður Smári Guðjohnsen og Hjörvar Hafliðason, sérfræðingar á SÝN Sport, eru staddir á Anfield og fóru yfir umdeildu atvikin í hálfleik.

„Ég get fundið aðeins til með Liverpool að vera ekki búið að fá hálft víti allavega. Stærsta atriðið er þegar Isak er við það að fara í boltann og það er togað aðeins í hann," sagði Eiður.

„Mér fannst Isak ekki gera nógu mikið úr atvikinu til að setja einhverskonar pressu á dómarann. Svo eru einhver 2-3 önnur atvik þar sem er svona hálf víti."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.